Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 19.3.2010
| 6:30
| Uppfært
7:09
Segir Woods hafa sent sér klúr sms
Joslyn James, fyrrum klámmyndaleikkona sem heitir réttu nafni Veronica Siwik-Daniels, segist hafa verið hjákona kylfingsins Tiger Woods og setti á netið í gær smáskilaboð (sms) sem hún segir Woods hafa sent sér á meðan á sambandi þeirra stóð. Ef sú er raunin virðist Woods hafa hneigst til ofbeldisfullra kynlífsathafna og beitt konur þvingunum við slíkar athafnir.
James segir í samtali við vef The Daily News að Woods hafi haft heldur óhefðbundnar þarfir og verið ofbeldishneigður á köflum. Spurð að því hvort Woods hafi meitt hana einhvern tíma svarar James því til að hún vilji ekki ræða það.
James segist vilja að Woods segi allan sannleikann í málinu og finnst afsökunarbeiðni hans á blaðamannafundi sem hann hélt um daginn greinilega ekki fullnægjandi.
Meðal þess sem Woods á að hafa sent James í smáskilaboðum eru óskir um þríleik með henni og annarri konu sem hún treysti. Þá hafi hann einnig sagst vilja fara harkalega með hana, rassskella hana, tuska til og grípa kverkataki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum









