Verðir sýna listir sínar
Verðir sem starfa á Metropolitan listasafninu í New York hafa snúið dæminu við - í stað þess að gæta listaverka - sýna þeir verk sín. Sýningin, sem er samsýning 35 varða, hefur vakið mikla athygli í listalífi New York borgar enda margir varðanna einnig listamenn.
Fabian Berenbaum, listamaður og safnvörður segir verðina vinna mikilvægt starf, að gæta listarinnar og gestanna sem leggja leið sína í safnið. En stundum eigi þeir sínar stundir með verkum safnsins án afskipta annarra. Þá gaumgæfi þeir verkin og njóta listarinnar sjálfir.
Verk varðanna eru til sýnis í Gallery 25CPW og segir framkvæmdastjóri þess að sýningin hafi fengið gríðarlega athygli. Því hafi þurft að opna sýninguna á ný vegna fjölda óska þar um en hægt verður að skoða sýninguna á ný á morgun.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









