Warren Buffett í rokkmyndbandi

Warren Buffet í myndbandinu á YouTube. stækka

Warren Buffet í myndbandinu á YouTube.

Bandaríski kaupsýslumaðurinn Warren Buffett, þriðji ríkasti maður heims, bregður stundum á leik ef svo ber undir. Nú fer myndskeið þar sem Buffett sést í hlutverki rokksöngvara sigurför um netið.  

Starfsmenn tryggingafélagsins Geico, sem er í eigu fjárfestingarfélags Buffets, hafa sett saman tónlistarmyndskeið þar sem þau syngja lag um bílatryggingar. Lukkudýr fyrirtækisins, eðla, leikur hlutverk gítarleikarans Slash í sveitinni Guns N' Roses en Buffett, sem er 79 ára, stelur senunni í hlutverki söngvarans Axl Rose, með hárkollu, ennisband, húðflúr og í skotapilsi.

Á fréttavef tímaritsins Time er haft eftir Phil Ovuka, talsmanni Geico, að starfsmennirnir hafi ekki reiknað með að Buffett myndi taka þátt í þessu gamni en hann var til í slaginn.

Starfsmenn Geico hafa oft áður sett saman myndskeið fyrir árshátíð fyrirtækisins og Buffett hefur verið með undanfarin fjögur ár, meðal annars í hlutverki plötusnúðs. 

Frétt Time

Myndskeiðið

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is