Erfingjar Önnu Nicolu fá ekki neitt

Anna Nicole Smith árið 2004.

Anna Nicole Smith árið 2004. AP

Áfrýjunardómstóll í Los Angeles úrskurðaði í gærkvöldi að erfingjar fyrirsætunnar Önnu Nicole Smith fái ekki einn dal af þeim auðæfum, sem Smith taldi sig hafa erft eftir eiginmann sinn. Sá lést árið 1995 en Smith lést árið 2007 og hafði þá staðið í málaferlum við börn mannsins um arfinn.

Dómstóllinn úrskurðaði E. Pierce Marshall í vil en hann er sonur auðkýfingsins Howard Marshall. Þau Howard Marshall og Smith giftu sig árið 1994 en hún kynntist hinum þegar hún var að vinna á nektarstað. Smith var 26 ára en Marshall 89 ára. 

Þegar Marshall  lést eftir rúmlega ár í hjónasælunni voru eignir hans metnar á 1,6 milljarða dala, jafnvirði yfir 200 milljarða króna. Í kjölfarið hófust langvinnar deilur milli Smith og barna Marshalls um arfinn. Málið kom meðal annars til kasta hæstaréttar Bandaríkjanna, sem dæmdi að Smith gæti krafist arfs eftir mann sinn. Endanleg niðurstaða í erfðadeilunni er þó ekki fengin þrátt fyrir dóminn í gærkvöldi en lögmaður dánarbús Smith segir að þeim dómi verði áfrýjað.

Smith lést í hótelherbergi á Flórída í febrúar árið 2007 og var dánarorsökin of stór lyfjaskammtur. Erfðaskrá hennar hafði þá ekki verið uppfærð og samkvæmt henni var eini erfinginn Daniel sonur hennar, sem hafði látist hálfu ári áður. Lögmaðurinn Howard Stern var tilnefndur sem fjárhaldsmaður. 

Dóttir Smith,  Dannielynn Hope, sem fæddist í september 2006, lenti í kjölfarið í miðpunkti harðra deilna um hugsanlegan arf eftir Smith, sem talinn var geta numið um 300 milljónum dala, jafnvirði 38 milljarða króna.

Þegar Smith lést var faðerni Dannielynn Hope óvíst. Þrír karlmenn, þeir Howard Stern lögmaður, Frederic van Anhalt, eiginmaður leikkonunnar  Zsa Zsa Gabor og ljósmyndarinn Larry Birkhead fóru allir í faðernismál og sögðust vera faðirinn. Erfðafræðirannsóknir leiddu síðan í ljós, að Birkhead væri sá heppni. 

Royal Opera House í Lundúnum tilkynnti í vikunni, að á næsta ári yrði frumsýnd þar ópera um líf Smith eftir Mark-Anthony Turnage og Richard Thomas. Þeir sömdu einnig umdeilda óperu um sjónvarpsmanninn Jerry Springer.

Larry Birkhead með Dannielynn dóttur sinni.

Larry Birkhead með Dannielynn dóttur sinni. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is