Lögreglan angrar gömul hjón

Lögreglumennirnir gáfu gömlu hjónunum ostaköku. stækka

Lögreglumennirnir gáfu gömlu hjónunum ostaköku. DAVID MOIR

Lögreglumenn í New York hafa gefið eldri hjónum í Brooklyn ostaköku samhliða því að biðjast afsökunar á því að hafa ítrekað raskað ró þeirra vegna mistaka sem rekja má til villu í tölvukerfi.

Á síðustu átta árum hefur lögreglan barið að dyrum hjá Walter og Rose Martin um 50 sinnum. Á þriðjudaginn börðu lögreglumenn að dyrum hjá þeim og kölluðu: „Lögreglan, opnið dyrnar.“

Hjónin, sem eru 82 og 83 ára gömul, tóku lögreglumönnunum vel þegar þeir komu með ostakökuna og sýndu þeim myndir af barnabörnum sínum.

Ástæðan fyrir því að lögreglan er sífellt að banka upp á hjá hjónunum er að árið 2002 notaði lögreglan heimilisfang hjónanna sem prufu þegar verið var að taka nýtt tölvukerfi í notkun. Hjónin lögðu fram kvörtun árið 2007, en tölvukerfið hefur samt haldið áfram að senda lögreglunni skilaboð um að nauðsynlegt sé að banka upp á hjá hjónunum. Tölvusérfræðingar lögreglunnar hafa reynt að leiðrétta villuna en hún heldur áfram að koma upp.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is