Antichrist besta danska myndin

Lars Von Trier og Charlotte Gainsbourg á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra. stækka

Lars Von Trier og Charlotte Gainsbourg á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra. Reuters

Kvikmynd Lars von Triers, Antichrist, fékk fimm verðlaun þegar dönsku kvikmyndaverðlaunin, kölluð Bodil-verðlaun, voru veitt í kvöld.

Myndin var valin besta danska mynd síðasta árs, aðalleikararnir Willem Dafoe og Charlotte Gainsbourg voru valin þau bestu og einnig fékk myndin verðlaun fyrir kvikmyndatöku og hljóð.

Þau Pernille Vallentin og Jens Andersen voru valin bestu aukaleikararnir, bæði fyrir leik sinn í myndinni Fri os fra det onde eftir Ole Bornedal.

Antichrist fékk kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í vetur. Þá var Charlotte Gainsbourg valin besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra fyrir leik sinn í myndinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is