Óskar formlega eftir skilnaði

Cheryl Cole kom fram í sjónvarpi í Danmörku nýverið stækka

Cheryl Cole kom fram í sjónvarpi í Danmörku nýverið Reuters

Breska tónlistarkonan Cheryl Cole mun væntanlega óska formlega eftir skilnaði í vikunni en nokkrar vikur er síðan tilkynnt var um væntanlegan skilnað hennar og enska knattspyrnumannsins Ashley Cole vegna ítrekaðra hjúskaparbrota hans.

Heimild breska blaðsins Sunday Mirror hermir að Cheryl vilji ljúka skilnaðinum af sem fyrst og hún sækist ekki eftir því að fá aur frá eiginmanninum. Peningar hans hafi aldrei skipt hana máli og þeir geri það heldur ekki nú.

Á Cheryl að hafa átt fund með þekktum skilnaðarlögfræðingi, Fionu Shackleton, sem hefur meðal annars gætt hagsmuna Karls Bretaprins og   Paul McCartney.

Hins vegar herma aðrar heimildir að þrátt fyrir að söngkonan viti að hjónabandið sé á enda þá vilji hún bíða í sex mánuði með að ganga formlega frá skilnaðinum. Er það af virðingu við eiginmanninn sem mun væntanlega taka þátt í Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í sumar fyrir Englands hönd.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is