Veröld/Fólk
| mbl
| 22.3.2010
| 15:03
Danir hópast í bíó
Noomi Rapace og Michael Nyqvist fara með aðalhlutverkin í kvikmyndum, sem gerðar hafa verið eftir bókum Stiegs Larssons.
Aðsókn að dönskum kvikmyndahúsum var mikil á síðasta ári. Hafa ekki fleiri Danir farið í bíó frá árinu 1982. Er þessi aukni bíóáhugi Dana meðal annars rakinn til sænsku myndanna þriggja, sem gerðar voru eftir skáldsögum Stieg Larssons.
Alls var seld 14,1 milljón bíómiða í Danmörku á síðasta ári, 6% fleiri en á árinu 2008. 2,15 milljónir manna sáu myndirnar, sem gerðar voru eftir sögum Larssons. Sex af þeim 10 myndum, sem mest voru sóttar, voru frá öðrum löndum en Bandaríkjunum en sú sem mesta aðsókn fékk var Harry Potter og blendingsprinsinn sem 596.691 sá.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
- Drukknaði Houston í baðkarinu?
-
Lík Houston flutt af hótelinu
- „Óbærilegt álag“









