Doherty handtekinn vegna fíkniefnamáls

Pete Doherty hefur ítrekað lent í vandræðum vegna fíkniefnamála. stækka

Pete Doherty hefur ítrekað lent í vandræðum vegna fíkniefnamála. Reuters

Í ljós hefur komið að enski tónlistarmaðurinn Pete Doherty var einn fjögurra manna, sem handtekinn var í síðustu viku eftir að 27 ára gömul kona fannst látin í íbúð í Lundúnum í janúar. Grunur leikur á að Doherty hafi útvegað konunni fíkniefni. 

Robin Whitehead, sem fannst látin 24. janúar var að gera heimildarmynd um Doherty og hljómsveit hans, Babyshambles. Að sögn breska útvarpsins BBC fundust fíkniefni og munir tengdir fíkniefnaneyslu í íbúð hennar.  

Robin var dótturdóttir Teddy Goldsmith, stofnanda tímaritsins The Ecologist.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is