Drykkfeldir Tonga-búar?
Flugfélagið Air New Zealand hefur beðist afsökunar á ummælum í kennslubók fyrir starfsfólk þar sem varað er við því, að margir íbúar frá Tonga-eyjum kunni að reyna að drekka allt það áfengi sem finnst í flugvélum.
Í leiðbeiningarbæklingi fyrir starfsfólk flugfélagsins frá árinu 2008 segir, að íbúar á Tonga séu hæglátt og hógvært fólk en margi þeirra reyni hins vegar að tæma barinn.
Alan Gaskin, framkvæmdastjóri flugþjónustu Air New Zealand, hefur nú beðist afsökunar á bæklingnum og segir að hann sé ekki lengur í notkun.
„Ætlunin var ekki að móðga neinn og við biðjumst afsökunar hafi svo farið," hefur blaðið New Zealand Herald eftir honum.
Nýsjálenski þingmaðurinn Carmel Sepuloni, sem á ættir að rekja til Tonga, sagði í dag að bæklingurinn væri algerlega óviðunandi en að hún féllist á afsökunarbeiðnina.









