Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 22.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:30
Gestir frá Ítalíu í Norræna húsinu
Næstkomandi miðvikudagskvöld, 24. mars, hefst kammertónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið.
Flytjendur á fyrstu tónleikum starfsársins eru ítalskir, Natalia Benedetti klarínettuleikari og Sebastiano Brusco píanóleikari. Þau munu flytja efnisskrá með vinsælum verkum fyrir klarínett og píanó eftir evrópsk og bandarísk tónskáld.
Brusco og Benedetti hafa starfað saman um nokkurt skeið á alþjóðlegum vettvangi. Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1.500 en ókeypis fyrir alla undir 21 árs aldri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









