Palin með raunveruleikasjónvarpsþátt?

Sarah Palin. stækka

Sarah Palin. Reuters

Líkur eru taldir á að Sarah Palin, sem var varaforsetaefni repúblikana í bandarísku forsetakosningunum árið 2008, fái að stýra eigin raunveruleikasjónvarpsþætti í bandarísku sjónvarpi.  

Reutersfréttastofan segir, að A&E Networks og Discovery Communications vilji kaupa sýningarréttinn á þættinum, sem á að fjalla um ferðir Palin um Alaska.  Mark Burnett verður framleiðandi þáttanna.

Reuters segir, að Palin fari fram á að fá 1-1,5 milljónir dala fyrir hvern þátt, sem þykir heldur í hærra lagi. Hún reyndi fyrst að selja stóru sjónvarpsstöðvunum í Bandaríkjunum hugmyndina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is