Tiger segist hafa verið í afneitun
Tiger Woods sagði í viðtali við íþróttasjónvarpsstöðina ESPN í kvöld, að hann hefði verið í afneitun og sært marga með framkomu sinni, þar á meðal eiginkonu sína og fjölskyldu.
„Ég lifði í blekkingu," sagði Woods í fyrsta viðtalinu, sem hann hefur veitt frá því hann varð miðpunktur hneykslismáls í nóvember. „Og ég gerði hluti sem særðu marga. Þegar maður flettir ofan af afneituninni og réttlætingunni sér maður sannleikann um sjálfan sig og hann er stundum ófagur."
Woods tilkynnti í síðustu viku að hann muni taka þátt í Masters golfmótinu á Augusta golfvellinum í Georgíu eftir fjögurra mánaða hlé frá keppni. Búist er við gríðarlegu fjölmiðlafári þegar Woods birtist með kylfurnar á ný.
Woods sagði í viðtalinu, að hann væri að endurskipuleggja líf sitt. „Þegar maður horfist í augu við það og reynir að sigrast á því og haga sér í samræmi við það þá fyllist maður krafti; ég hef aldrei fundið fyrir slíkum krafti áður."
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum









