Borgarholtsskóli sigraði í söngkeppninni

Kristmundur Axel, lengst til vinstri, sem samdi textann við sigurlagið …
Kristmundur Axel, lengst til vinstri, sem samdi textann við sigurlagið og rappaði, gítarleikarinn Guðni Matthíasson, Júlí Heiðar söngvari og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Söngkeppni framhaldsskólanna er lokið í íþróttahöllinni á Akureyri, en keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2. Sigurvegari var Borgarholtsskóli en flytjendur skólans, Kristmundur Axel Kristmundsson og Júlí Heiðar, röppuðu lagið Komdu til baka (Tears in Heaven). Verðlaunin afhenti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í tilefni 20 ára afmælis keppninnar.

Kristmundur Axel samdi textann við sigurlagið.

Í öðru sæti að þessu sinni urðu einnig rapparar, fulltrúar Menntaskólans á Akureyri; Darri Rafn Hólmarsson, Rakel Sigurðardóttir og Stefán Ernir Valmundarson, og í þriðja sæti varð söngkona frá Verzlunarskóla Íslands, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir.

Kristmundur Axel, til vinstri, og Júlí Heiðar flytja sigurlagið í …
Kristmundur Axel, til vinstri, og Júlí Heiðar flytja sigurlagið í kvöld. mbl.is/Skapti
Kristmundur Axel, sem samdi textann og flutti sigurlagið ásamt Júlí …
Kristmundur Axel, sem samdi textann og flutti sigurlagið ásamt Júlí Heiðari, var undrandi þegar hann steig á svið eftir að úrslitin voru tilkynnt. mbl.is/Skapti
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler