Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 1.5.2010
| 13:14
Með fimm ára son sinn á brjósti
Bresk móðir sem legið hefur undir ámæli fyrir að vera með fimm ára son sinn
í brjósti vísar allri gagnrýni á bug. Í samtali við breska götublaðið Daily
Mirror segist Amanda Hurst sem er 29 ára og komin sjö mánuði á leið ekki hafa gert
neitt rangt.
Hurst segist hafa ætlað að hætta brjóstagjöf þegar sonur hennar var sex mánaða – líkt og hefðbundið er – en að gefa brjóst hafi virkað svo eðlilegt að hún hafi haldið áfram. Hún gætir einnig barna vinafólks síns og segist einnig gefa þeim af brjósti, svo framarlega sem foreldrarnir samþykki það.
Eiginmaður Hurst styður ákvörðun konu sinnar að fullu og tekur fram að sonurinn fái aðeins brjóstamjólk á heimilinu, ekki á almannafæri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









