22 myndir valdar á Stuttmyndadaga

Úr Kringlunni. stækka

Úr Kringlunni. mbl.is/Eggert

Alls hafa 22 nýjar íslenskar stuttmyndir verið valdar á Stuttmyndadaga í Reykjavík, sem fram fer í Kringlubíói þann 31. maí. Tæplega 40 myndir bárust að þessu sinni og valdi dómnefndin þessar úr.
 
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, 100.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 75.000 kr. fyrir annað sætið og 50.000 kr. fyrir þriðja sætið. Þá verða veitt áhorfendaverðlaun og auk þess mun Sjónvarpið sýna þær myndir sem hljóta áðurnefnd verðlaun. Þá verður leikstjóra þeirrar myndar sem hlýtur fyrsta sætið, boðið á Kvikmyndahátíðina í Cannes að ári þar sem myndin tekur þátt í hinu svokallaða Short Film Corner.
 
Dagskráin í Kringlubíói hefst kl. 19 og stendur í rúmlega þrjár klukkustundir. Allir eru velkomnir og kostar ekkert inn.
 
Myndirnar eru:

A bad day, eftir Hlín Davíðsdóttir
Afterimage, eftir Ragnar Snorrason
Áttu vatn? eftir Harald Sigurjónsson
Blablabla, eftir Anni Ólafsdóttir
Bronz, eftir Ragnar Snorrason
Bumps In The Night, eftir Erling Óttar Thoroddsen
Children of Eve, eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur
Dinner is Served, eftir Gunnur von Matern
Eater Of The Sun, eftir Sindra Gretarsson
Ég elska þig, eftir Sævar Sigurðsson
Ferðafélagi, eftir Arnar Sigurðsson
Gaza, eftir Hjálmtýr Heiðdal
Glugginn, eftir Hrafn Hrólfsson
Hafið þennan dag, eftir Hilmi Berg Ragnarsson
Kötturinn Njáll, eftir Grím Örn Þórðarson
Lóla, eftir Áslaugu Einarsdóttur
Ofurkrúttið, eftir Jónatan Arnar Örlygsson og Grím Björn Grímsson
Psssst, eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur
Spacebaby, eftir Jón Már Gunnarsson
Sykurmoli, eftir Söru Gunnarsdóttur
Veran, eftir Snorra Fairweather
Þyngdarafl, eftir Loga Hilmarsson.
 
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Björk aflýsti tónleikum

Björk flytur lög af plötunni Biophilia.
23:25 Björk Guðmundsdóttir aflýsti tónleikum, sem hún ætlaði að halda í New York Hall of Science í New York í kvöld. Fram kemur á vef blaðsins New York Times að tónleikunum hafi verið aflýst vegna veikinda. Meira »

Kvikmyndahátíðin í Berlín sett myndskeið

Naomi Watts leikur Díönu prinsessu
22:27 Þrátt fyrir snjó og kulda fór kvikmyndahátíðin í Berlín vel af stað í dag, en þetta er í 62. skiptið sem hún er haldin. Meðal þeirra sem voru viðstaddir opnunarmyndina, Farewell My Queen, var þýska leikkonan og fyrirsætan Diana Kruger. Hátíðin stendur til 19. febrúar. Meira »

Kelly Clarkson ekki samkynhneigð

Kelly Clarkson
22:40 Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp. Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma. Meira »

Tilbúin að sættast við föður sinn

Tónlistarkonan Christina Aguilera.
22:20 Christina Aguilera útilokaði föður sinn úr lífi sínu fyrir tólf árum.   Meira »

finnur.is