Fyrir stuttu tilkynntu meðlimir hljómsveitarinnar Supergrass að sveitin myndi hætta að loknu stuttu tónleikaferðalagi um Evrópu. Síðustu tónleikar hljómsveitarinnar fóru fram í gærkvöldi á skemmtistaðnum Paris' La Cigalle í París.
Kvöldið áður spiluðu þeir félagar lokatónleika sína á Bretlandseyjum fyrir fullu húsi í O2 Academy Brixton. Hljómsveitin spilaði lög frá öllum ferli sínum; þeir byrjuðu á því nýjasta og enduðu á lögum af frumraun sinni I Should Coco sem vakti mikla hrifningu á meðal áhorfenda.