„Weird girls“ verkefni Kitty Von-Sometime heldur áfram. Heimildarmynd hennar verður frumsýnd í Nýlistasafninu á Jónsvöku, sunnudaginn 27. júní nk., samkvæmt fréttatilkynningu sem hún hefur sent frá sér til fjölmiðla.
Í myndinni er fylgst með Kitty í fjóra mánuði. Þar er skoðað hvernig hugmyndir hennar þróast og verða að veruleika í myndbandi hennar á Kvikmyndahátíð í Grundarfirði. Verkefnið mun endurspegla heildarmynd af fyrri verkum Von-Sometime og verður þetta partur af Jónsvöku.
Fleiri upplýsingar er að nálgast á heimasíðu Jónsvöku
Einnig er hægt að nálgast nýjasta myndband hennar sem var framleitt fyrir lagið Hateful með hljómsveitinni Gus Gus hér. En myndbandið var nýlega frumsýnt.