Hugleiðsla í Salnum

Dadi Gulzar. stækka

Dadi Gulzar.

Tvær heimsþekktar konur á sviði hugleiðslu og andlegrar íhugunar koma fram í Salnum í Kópavogi annað kvöld. Áhugafólk um andlega iðkun er eindregið hvatt til að hlýða á boðskap kvennanna. Tilefnið er að í sumar eru 10 ár liðin síðan starfsemi hugleiðsluskólans Lótushúss hófst í Kópavogi. 

Fram kemur í tilkynningu frá skólanum að í tilefni þessa verði þær Dadi Gulzar og Jayanti Kirpalani heiðursgestir, en þær eru sagðar á meðal áhrifaríkustu andlegu leiðtoga heimsins í dag.

Hefst fyrirlestur þeirra í Salnum kl. 19:30 annað kvöld, þriðjudag.

Býr yfir mikilli visku

Fyrirlesurunum er lýst á þennan veg í tilkynningu skólans:

„Dadi Gulzar er fædd á Indlandi og einn af megin leiðtogum Brahma Kumaris World Spiritual University. Hún er á níræðisaldri og hefur ástundað hugleiðslu frá 8 ára aldri. Hún býr yfir mikilli visku og lætur djúpur innri friður hennar engan ósnortinn.

Jayanti Kirpalani er boðberi nýrra tíma og eftirsóttur fyrirlesari um allan heim. Hún varpar skýru ljósi á atburðarás og málefni líðandi stundar og hefur unnið óþreytandi starf við að stuðla að jákvæðri vitundarvakningu í heiminum.“

Nánar má fræðast um skólann hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is