„Eldfjallið" Össur

Össur Skarphéðinsson stækka

Össur Skarphéðinsson mbl.is/Ómar Óskarsson

Til snarpra orðaskipta kom á milli Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra og Per Sanderud, forseta Eftirlitsnefndar  EFTA, á fundi EFTA ríkjanna í Reykjavík í dag. Snérist deilan um Icesave en svo virðist sem Sanderud hafi talið að Íslendingar ætli ekki að standa við skuldbindingar sínar. Reiddist Össur Sanderud og hvessti sig við Sanderud sem svaraði í sömu mynt og kallaði Össur eldfjall, samkvæmt frásögn Aftenposten af fundinum.

Össur segir í samtali við Aftenposten að Sanderud hafi farið yfir strikið gagnvart Íslandi í umræðu um Icesave. Hann hafi sakað Íslendinga um að vilja ekki greiða. Það er ekki rétt hjá honum, segir Össur í samtali við Aftenposten.

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
Í gær, 21:04 Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

Biðja fyrir heilbrigðum býflugum

Prestur í rétttrúnaðarkirkjunni biður til heilags Haralambos um betri tíð.
í gær Meðlimir í rétttrúnaðarkirkjunni í Búlgaríu tilbiðja í dag dýrlinginn Haralambos, verndara býflugna. Biður fólk dýrlinginn að vernda heimili sín og aflétta frosthörkunum í landinu. Meira »

Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.
í gær Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone with the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum. Meira »

Einfættur fíkniefnasali reyndi að flýja

Maðurinn var með 120 grömm af kókaíni innvortis.
í fyrradag Bandarískur fíkniefnasali sem lögregla í Jacksonwille, í Flórídaríki, hafði afskipti af á dögunum reyndi að flýja undan laganna vörðum. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að maðurinn sem er á þrítugsaldri er einfættur. Meira »

finnur.is