Uppselt á Hróarskeldu í ár

Íslendingar fjölmenna jafnan á Hróarskeldu.

Íslendingar fjölmenna jafnan á Hróarskeldu. JOHN MCCONNICO

Uppselt er á tónlistarhátíðina á Hróarskeldu í ár, en í boði voru 75.000 miðar og seldust þeir síðustu upp þann 17. júní. Síðustu daga áður en uppselt varð seldust miðar á hátíðina hratt en það má, að sögn Tómasar Young tengiliðs Hróarskeldu á Íslandi,  rekja til þess, eins og fyrri ár, að tónleikadagskráin var gerð opinber s.l. sunnudag. Aðeins liðu fjórir dagar frá opinberun dagskrárinnar þar til uppselt varð á hátíðina.

Þó að allir miðar séu uppseldir sem veita aðgang að öllum dögum hátíðarinnar er enn möguleiki á að kaupa aðgang á staka daga hátíðarinnar. Miðana má kaupa hér: http://www.roskilde-festival.dk/uk/tickets/.

Tveimur hljómsveitum var bætt við nú á lokametrunum fyrir hátíðina en þær eru jafnframt þær síðustu sem tilkynntar eru á hátíðina að sögn Tómasar. Bandaríski tónlistarmaðurinn Gonjasufi spilar og þá mun Turboweekend frá Danmörku einnig koma fram.  

Patti Smith heiðrar minningu hinna látnu

Söngkonan Patti Smith mun koma að sérstökum viðburði á fimmtudeginum áður en tónleikar hefjast á svæðinu. Hún kemur fram með gítarleikara sínum Lenny Kay og munu þau ásamt hátíðargestum heiðra minningu þeirra sem létust árið 2000 á Pearl Jam tónleikunum.

„Að biðja Patti Smith um þetta var augljós kostur. Og okkur til mikillar gleði fengum við svar innan fárra klukkustunda - hún vildi endilega koma og þótti mikill heiður að vera beðin," sagði Rikke Öxner aðalbókari tónlistarhóps hátíðarinnar. Patti Smith kom síðast fram á Hróarskeldu árið 2001 á hátíðinni eftir að slysið hafði átt sér stað. Í tilkynningu segir að Patti hafi átt þátt í því að hátíðargestir hafi reist sig upp úr sorginni og tómleikanum með tónlist hennar á hljómleikunum árið 2001. „Hún hjálpaði öllum sem hlustuðu að finna sinn rétta anda og hátíðarhugrekkið," eins og Rikke Öxner orðar það. Viðburðurinn fer fram sem sér dagskrárliður og hefur engin áhrif á tónleika Patti Smith sem verða á laugardeginum í ár á appelsínugula sviðinu. 

Helstu hljómsveitir sem spila á Hróarskelduhátíðinni í ár eru: Gorillaz, Jack Johnson, Muse, Prince, Prodigy, Patti Smith, Them Crooked Vultures, Alice in Chains, Kasabian, LCD Soundsystem, Florence + The Machine, Motörhead, The National, Pavement, Sick of it all, Vampire Weekend, FM Belfast, Sólstafir, Biffy Clyro, Gallows, Julian Marley og margir fleiri.

Hljómsveitalistann í heild sinni má finna á heimasíðu Hróarskeldu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is