Unglingapoppari fyrir barðinu á stríðnispúkum
Justin Bieber sendir bandarískum aðdáendum sínum friðarsendingu með fingrunum. Breskir aðáendur hans gætu hins vegar misskilið sendinguna. Reuters
Kanadíska unglingapoppstjarnan Justin Bieber hefur orðið fyrir barðinu á sprelligosum á netinu. Popparinn hefur hvatt aðdáendur sína á síðunni My World Tour til að benda sér á hvaða land hann eigi að heimsækja á næstunni og halda tónleika. Engin takmörk eru fyrir því hvaða lönd standa til boða.
Notendur spjallsíðunnar 4Chan hafa tekið upp á því að velja Norður-Kóreu sem næsta áfangastað popparans og hafa fleiri netverjar tekið upp á þessu í framhaldinu.
Norður-Kórea hefur fengið tæplega 500.000 atkvæði í fyrsta sæti og er Ísrael skammt á eftir. Ísland er einnig á lista en mjög neðarlega, eða í 186. sæti með um 1.000 atkvæði.
Á tæpum tveimur dögum fór N-Kórea úr því að vera í 24. sæti í það fyrsta. Keppninni lýkur 7. júlí nk.
Menn efast stórlega um að íbúar Norður-Kóreu séu miklir aðdáendur hins 16 ára gamla Biebers í ljósi þess að nánast allir íbúar landsins hafa engan aðgang að netinu og mjög takmarkaðan aðgang að fjölmiðlum. Ljóst þyki að atkvæðin komi ekki þaðan.
Undanfarnar vikur hefur drengurinn verið skotspónn stríðnispúka á netinu. Á 4Chan voru notendur hvattir til að skrifa „Justin Bieber Syphilis“ á Google leitarsíðunni sem varð til þess að leitin komst á toppinn yfir vinsælustu leitarorðin.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









