Dó í miðri vampírumynd

Robert Pattinson leikur aðalhlutverkið í Twilight-myndunum. stækka

Robert Pattinson leikur aðalhlutverkið í Twilight-myndunum. Reuters

Ungur maður fannst látinn í sal kvikmyndahúss í Wellington á Nýja-Sjálandi eftir að sýningu lauk á kvikmyndinni "The Twilight Saga: Eclipse".

Allir aðrir höfðu yfirgefið salinn þegar starfsmaður kvikmyndahússins tók eftir því að maðurinn sat enn í sæti sínu. Hann hélt að hann hefði sofnað en uppgötvaði að hann væri látinn þegar hann kannaði málið. Engir áverkar fundust á líkinu.

Krufning fer fram í dag þar sem reynt verður að komast að því hvað olli dauða mannsins að sögn rannsóknarlögreglunnar í Wellington en ekkert þykir benda til þess að maðurinn hafi verið myrtur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
Í gær, 12:05 Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

í fyrradag Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
í fyrradag Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Orsök fjárhagsáhyggna fundin

Teikning af heila
21.2. Vísindamenn hafa uppgötvað að tiltekið efni í heilanum hefur þýðingarmikil áhrif á hvort fólk geti einfaldlega lagt sársauka vegna fjárhagslegra áfalla til hliðar eða ekki. Meira »

finnur.is