Prince: Netið er búið spil

Prince veit hvað hann syngur, eða hvað? stækka

Prince veit hvað hann syngur, eða hvað? Reuters

Bandaríski tónlistarmaðurinn Prince hefur enga trú á framtíð netsins ef marka má ummæli hans sem birtust í viðtali við breska slúðurblaðið The Mirror. „Netið er búið spil,“ segir Prince í viðtalinu, sem er það fyrsta sem hann hefur veitt í áratug.

„Hvers vegna ætti ég að gefa iTunes eða einhverjum öðrum nýju lögin mín. Þeir borga mér ekki fyrirfram og svo verða þeir reiðir þegar þeir fá þau ekki.“

Prince hyggst dreifa nýjustu breiðskífu sinni, sem nefnist 20Ten, ókeypis í gegnum ýmis dagblöð, m.a. Daily Mirror í Bretlandi og Daily Record í Skotlandi. 

Aðdáendur listamannsins geta nælt sér í eintak á laugardag með því að kaupa sér blað. Þeir munu hins vegar ekki geta nálgast efnið á netinu.

Prince hefur bannað YouTube og iTunes að nota tónlist eftir sig, og þá hefur hann lokað vefsíðunni sinni. Hann segir að netið sé orðið úrelt.

„Netið er eins og MTV,“ segir hann. „Eitt sinn var MTV aðalmálið og svo var stöðin orðin úr sér gengin. Hvað sem því líður, þá er ekkert gott við allar þessar tölvur og stafrænu tæki. Þau fylla bara hausinn á þér af tölum, og það getur ekki verið gott fyrir þig,“ segir Prince.

Popparinn hefur ekki tilkynnt með hvaða hætti hann muni gefa út nýju plötuna í Bandaríkjunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Viktoría fer heim af spítalanum

Daníel Westling og Viktoría krónprinsessa Svía.
13:17 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur í morgun en er nú komin heim til sín. Hér sést hún yfirgefa spítalann.   Meira »

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

Undirbýr mynd um sjálfan sig

Elton John.
13:11 Justin Timberlake fer með hlutverk Eltons Johns en leit stendur yfir að rétta leikstjóranum  Meira »

Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman

Rihanna.
09:46 Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru. Meira »

finnur.is