Páll spáir Spáni og Þýskalandi sigri

Þýski kolkrabbinn Páll spáir Spáni sigri á Hollandi í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á sunnudag. Þá spáir hann Þjóðverjum sigri á Úrúgvæ í leiknum um 3. sætið á morgun. 

Páll hefur til þessa spáð rétt fyrir um alla leiki Þýskalands á mótinu, þar á meðal tapleikinn gegn Spánverjum í undanúrslitum við litlar þakkir landa hans.

Evrópskar sjónvarpsstöðvar sýndu beint frá því í morgun þegar tveir glerkassar með fánum Þýskalands og Úrúgvæ voru látnir síga niður í búr Páls í sædýrasafninu  í Oberhausen. Eftir að hafa setið drjúga stund á kassanum með fána Úrúgvæ snéri Páll sér að hinum kassanum, opnaði hann og sótti skel sem þar var.  

Nokkru síðar spáði Páll í úrslitaleikinn en þá voru glerkassar með skeljum og fánum Spánar og Hollands látnir síga niður til hans. Páll settist strax á spænska kassann og opnaði hann en leit ekki við hollenska kassanum. 

Páll spáði með þessum hætti rétt fyrir um sigra Þjóðverja á Argentínu, Englandi, Ástralíu og Gana við mikinn fögnuð Þjóðverja. Þá setti hins vegar hljóða þegar kolkrabbinn spáði Spánverjum sigri í undanúrslitunum og þegar Þjóðverjar töpuðu leiknum 1:0 hófst umræða á netinu um að réttast væri að breyta Páli í sjávarréttasalat eða sushi eða nota hann í paellu eða aðra rétti.

Spánverjar hafa hins vegar tekið Pál undir sinn verndarvæng og  José Luiz Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, sagði í hálfkæringi í gærkvöldi, að hann íhugaði að senda spænska lífvarðasveit til Oberhausen. 

Reiknað er með, að þetta sé í síðasta skipti, sem Páll spáir fyrir um úrslit fótboltaleikja. Hann er orðinn tveggja og hálfs árs og kominn á eftirlaunaaldur kolkrabba, sem sjaldan verða eldri en þriggja ára. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is