Ítalir vilja eigna sér Pál

Er kolkrabbinn Páll ítalskur og heitir Paolo? stækka

Er kolkrabbinn Páll ítalskur og heitir Paolo? Reuters

Ítalskir fjölmiðlar, sem gátu litlu fagnað á meðal ítalska landsliðið var með á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu, vilja nú slá eign sinni á kolkrabbann Pál, sem hefur spáð rétt fyrir um úrslit í leikjum á HM. Þjálfari dýrsins upplýsti nefnilega í  dag að Páll hefði veiðst í ítalskri lögsögu. 

„Kolkrabbinn heitir Paolo," segir íþróttablaðið Tuttosport í dag. 

Blaðið Il Corriere della Sera segir, að þetta sé smá sárabót í lok heimsmeistaramóts sem hafi fært Ítölum litla gleði. Ítalska liðið komst ekki upp úr riðlakeppninni.  

Verena Bartsch, þjálfari Páls, sagði í viðtali við þýska blaðið Bild í dag, að hún hefði fangað hann í apríl sl. undan ítölsku eyjunni Elbu. Hann hefði þá verið fjögurra vikna gamall. 

Þetta stangast á við opinbera ævisögu Páls, sem sædýrasafnið í  Oberhausen í Þýskalandi hefur gefið út. Samkvæmt henni er Páll tveggja og hálfs árs og kom upphaflega frá Weymouth á Englandi. 

Páll hefur spáð rétt fyrir um leiki Þýskalands á HM til þessa, þar á meðal að þeir myndu tapa fyrir Spáni í undanúrslitum, sem hann fékk litla þökk fyrir. Hann hefur einnig spáð fyrir um úrslitaleikinn í kvöld og sagði, með því að sækja sér skel í kassa merktan Spáni, að Spánverjar verði heimsmeistarar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is