Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| AFP
| 11.7.2010
| 11:52
Reyndu að setja vuvuzela-hávaðamet
Vuvuzela lúðrarnir hafa sett mikinn svip á heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Suður-Afríku. Um 100 hollenskir knattspyrnuunnendur reyndu í gær að setja hávaðamet með slíkum lúðrum og yfirgnæfa þotuhreyfil en mistókst það naumlega.
Um 100 manns komu saman í hollenska bænum Schiedam í gær til að hita upp fyrir úrslitaleik HM milli Hollendinga og Spánverja. Þeir reyndu jafnframt að bæta vuvuzela hávaðametið, sem íbúar í annarri hollenskri borg settu.
Til þess þurftu þeir að framleiða álíka hávaða og þotuhreyfill en það var sama hvað þeir blésu, 25 desibil vantaði þar upp á.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









