Sakai skilin við eiginmann sinn
Japanska söngstjarnan Noriko Sakai, sem á síðasta ári var dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnamisferli, hefur gengið frá skilnaði við eiginmann sinn, Yuichi Takaso. Þau gengu í hjónaband árið 1998 og eiga ellefu ára gamlan son.
Sakai sem er 39 ára hefur verið mikið í umræðunni eftir að hún var dæmd í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í nóvember síðastliðnum. Dómurinn kom til vegna örvandi vímuefna sem hún neytti. Takaso var jafnframt dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í sama máli.
Í kjölfarið breytti Sakai um stefnu í lífinu og hóf fjarnám í hjúkrun við háskóla í Tókýó. „Ég er feginn að skilnaðurinn er genginn í gegn,“ segir Masahisa Aizawa, aðstoðarframkvæmdastjóri Sun Music en Sakai var á mála hjá fyrirtækinu. „Þetta fullvissar okkur um, að hún er ákveðin í að bæta ráð sitt.“
Sakai er þekkt um allan heim fyrir söng og leik sinn en helstu markaðssvæði hennar eru þó í Japan, Kína, Suður-Kóreu og Taívan.
- Eltihrellir Madonnu handtekinn
-
Harry prins kominn með þyrlupróf
- Munir úr Á hverfanda hveli brunnu
- Biðja fyrir heilbrigðum býflugum
- VÍS og Borgarleikhúsið í samstarf
- Koníak úr frönsku byltingunni til sölu
- McCartney fékk stjörnu
- Þetta er algjör hvirfilbylur
- Keppa fyrir Ísland í Stora Daldansen
- Fallinn fyrir Carmen Electra
- Ástfangin á sviðinu
- Eltihrellir Madonnu strauk af geðsjúkrahúsi









