Fangelsi fyrir vuvuzela-slag

Blásið í vuvuzela. stækka

Blásið í vuvuzela. Reuters

Átján ára gamall Simbabve-búi hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði skilorðsbundna, fyrir að valda því að annar maður missti sjón á öðru auganu.

Ástæðan fyrir átökum, sem brutust út var deila um vuvuzela-lúður en slíkur lúðrar hlutu heimsfrægð á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Suður-Afríku í sumar.

Pilturinn og tveir aðrir piltar réðust á mann á heimili hans í Simbabve eftir að maðurinn neitaði að láta af hendi vuvuzela-lúður, sem piltarnir fullyrtu að vinur þeirra ætti.

Pilturinn var sakfelldur fyrir líkamsárás og þjófnað og vinir hans tveir eiga einnig yfir höfði sér þjófnaðardóm. Maðurinn sem ráðist var á meiddist svo alvarlega á öðru auganu að það þurfti að fjarlægja.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is