Brjóstastækkun í happdrættisvinning

Gustavo Rojas ræðir við kjósendur. stækka

Gustavo Rojas ræðir við kjósendur. Reuters

Stjórnmálamaður nokkur í Venesúela hefur hleypt af stokkunum happdrætti til að fjármagna kosningabaráttu sína. Aðalvinningurinn er brjóstastækkunaraðgerð. 

Stjórnmálamaðurinn, sem heitir Gustavo Rojas, vonast til að þetta óvenjulega happdrætti muni fleyta honum inn í þing Venesúela en kosningar fara fram 26. september. Miðinn kostar jafnvirði rúmra 700 króna.  

„Í sumum happdrættum eru sjónvörp í verðlaun en við ákváðum að bjóða þetta," hefur Reutersfréttastofan eftir honum.

Lýtaaðgerðir eru algengar í Venesúela. Talið er að um 30 þúsund slíkar aðgerðir séu gerðar í landinu árlega og margir taka lán til að fjármagna þær. 

Rojas, sem er frambjóðandi Réttlætisflokksins, segist ekki hafa áhyggjur af því að femínistar gagnrýni happdrættið. „Þetta er fjáröflun og ekkert annað. Læknirinn mun gera aðgerðina, ekki ég," sagði hann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is