Læknar slógust í fæðingarstofunni

Börn á fæðingardeild.

Börn á fæðingardeild. AP

Tveir læknar lentu í slagsmálum inni í fæðingarstofu í sjúkrahúsi á Sikiley á Ítalíu.

Kona, sem var að fæða barn inni í stofunni, fékk alvarlegar blæðingar og barnið fékk tvívegis hjartastopp eftir að það fæddist en stjórnendur sjúkrahússins fullyrða að ekki megi rekja það til áfloganna.

Ítalska fréttastofan ANSA segir, að áflogin hafi byrjað á fæðingardeild í borginni Messina þegar kona var í þann mund að fæða barn. Eiginmaður konunnar sagði lögreglu, að læknarnir tveir hafi farið að rífast og síðan hafi annar tekið hinn hálstaki og kastað honum í vegg. Hinn læknirinn barði í gluggarúðu sem brotnaði og maðurinn meiddist á hendinni. 

Sjúkrahúsið vék læknunum samstundis frá störfum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is