Keppt í eistnasuðu

Konur bragða á réttunum. stækka

Konur bragða á réttunum. Reuters

Óvenjuleg heimsmeistarakeppni fer fram árlega í afskekktu fjallaþorpi í Serbíu. Þar geta gestir fylgst með því hvernig eistu eru matreidd eftir öllum kúnstarinnar reglum - og jafnvel fengið að smakka hafi þeir lyst. 

„Þessi hátíð snýst um fjör, mat og hugrekki," segir  Ljubomir Erovic,  matreiðslumaður sem skipuleggur samkomuna í Ozrem og hefur m.a. skrifað bók um leyndardóma eistnasuðu. 

Eistu, sem raunar eru kölluð hvít nýru í Serbíu, eru talin innihalda mikið af karlhormóninu testósterón og hafi góð áhrif á karlmennskuna.

„Nautseistun eru best þegar þau eru soðin eins og gúllas," sagði  Zoltan Levai, sigurvegari síðasta árs, þar sem hann hrærði í potti á hlóðum. Í pottinum var grænmeti og stór eistu sem fengin voru úr nálægu sláturhúsi.

Á hátíðinni eru matreiddir réttir úr umræddum líffærum úr björnum, kameldýrum, strútum og jafnvel kengúru.  Meðal annars er hægt að fá eistnapítsu og aðra framandi rétti.  Séu menn viðkvæmir fyrir þessum réttum er einnig hægt að fá grillað lamba- og nautakjöt.

Gestir skola kræsingunum niður með miklu af víni og bjór og kæla sig í litlum fjallalæk sem rennur meðfram keppnissvæðinu.  

„Ég kom hingað í fyrra og ákvað að koma aftur, " sagði Anna Wexler frá Ísrael. Hún situr í dómnefndinni í ár. „Þetta var frábært. Við fengum eistnamússaka, gúllas, og margt annað.    .

 

MARKO DJURICA

Höggvið í eldinn.

Höggvið í eldinn. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is