Aurskriða stöðvaði maraþon

Í miðju hlaupi stansaði Börkur til þess að smella af einni mynd. Leiðin er fremur ... stækka

Í miðju hlaupi stansaði Börkur til þess að smella af einni mynd. Leiðin er fremur strembin en gengið var upp í 2.500 metra hæð. mbl.is/Börkur Árnason.

Sex íslenskir hlaupagarpar lögðu leið sína til Frakklands til þess að taka þátt í Mont Blanc-fjallamaraþoninu. Heppnin var ekki með þátttakendum þar sem hlaupinu var aflýst vegna gríðarlegrar rigningar og aurskriðu.

Sleipt var í fjallinu og mikil leðja myndaðist vegna rigningarinnar en öðru eins úrhelli hafa menn ekki orðið vitni að á Íslandi.

„Hlaupinu var aflýst eftir að við hlupum 21 kílómetra. Hlaupið var bara stoppað og því varð ekkert af því,“ sagði Höskuldur Sigurvinsson en hann ásamt Berki Árnasyni ætlaði að hlaupa lengstu leiðina sem boðið er upp á, UTMB-maraþon sem er 166 kílómetrar. 

Íslendingarnir sem skráðu sig í hlaupið eru Arnfríður Kjartansdóttir, Helga Þóra Jónasdóttir, Daníel Smári Guðmundsson, Sigurður Kiernan og svo Höskuldur og Börkur, en nánar segir frá þessari þrekraun í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Komið í veg fyrir eðlilega umræðu á Alþingi

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fremst ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Bjarna Benediktssyni samflokksmönnum sínum.
08:41 „Enn og aftur er verið að snúa hlutum á hvolf. Hugmyndin var að rammaáætlun kæmi til Alþingis beint frá undirbúningsnefnd sérfræðinga. Nú ætlar ríkisstjórnin að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi meðhöndli málið með eðlilegum vinnubrögðum þingmála,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Vegir víðast hvar auðir

07:49 Vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni en hálkublettir eru hins vegar á nokkrum fáfarnari leiðum. Meira »

Stærstur hluti tekna af samkeppnismarkaði

08:04 „Íslandspóstur fagnar umræðunni en segist ekki mynda sér skoðun á málinu þar sem einkarétturinn liggi hjá ríkinu en Íslandspóstur framfylgi eingöngu lögum um póstdreifingu,“ segir í fréttatilkynningu frá Íslandspósti vegna umræðu um hvort afnema eigi einkarétt ríkisins á póstdreifingu bréfa að 50 grömmum. Meira »

Sveiflukenndur skíðavetur

Þótt meira hafi snjóað í ár en oft áður skilar það sér ekki í fleiri ...
07:30 Skíðaveturinn hefur ýmist verið skelfilegur eða frábær hjá skíðasvæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa síðustu helgar verið góðar með fallegu veðri og fjölda fólks að sögn Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur, verkstjóra innanhússtarfsmanna skíðasvæðisins. Meira »

finnur.is