Björk tók við Polarverðlaununum

Björk Guðmundsdóttir á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. stækka

Björk Guðmundsdóttir á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. Reuters

Björk Guðmundsdóttir tók nú síðdegis við sænsku Polarverðlaununum úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs en Björk fékk verðlaunin í ár ásamt ítalska tónskáldinu Ennio Morricone.

Guðmundur Gunnarsson, faðir Bjarkar, kynnti dóttur sína á verðlaunahátíðinni í dag og sagði m.a. að það kæmi sér ekki á óvart að hún hlyti verðlaunin í dag því tónlistarhæfileikar hennar hefðu komið mjög snemma í ljós.

Þakkarávarp Bjarkar var mjög stutt en hún sagði það mikinn heiður fyrir sig að hljóta Polarverðlaunin.

Sænskir listamenn fluttu meðal annars lög eftir Björk. Söngkonan Robyn flutti lagið Hyperballad og Wildbirds & Peacedrums fluttu Human Behavior.  Sænsku konungshjónin og Viktoría krónprinsessa og Daniel Westling, eiginmaður hennar, voru viðstödd hátíðina. 

Í kvöld heldur verðlaunahátíðin áfram á Grand Hotel í Stokkhólmi þar sem fleiri listamenn koma fram.

Stig Anderson, umboðsmaður hljómsveitarinnar ABBA, stofnaði til þessara verðlauna árið 1989 með stuðningi sænsku tónlistarakademíunnar. Fengu þau Björk og Morricone 1 milljón sænskra króna hvort, rúmar 17 milljónir íslenskra króna. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Led Zeppelin, Bob Dylan, Elton John og Bruce Springsteen.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is