Jöklafari finnst frosinn eftir 21 ár

Jöklarnir hopa. Myndin tengist fréttinni ekki beint. stækka

Jöklarnir hopa. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Rax / Ragnar Axelsson

21 ár er liðið síðan bandaríski fjallgöngumaðurinn William Holland, þá 38 ára, hvarf þegar hann reyndi við hættulegt jöklaklifur í Kanada, í apríl 1989. Ekkert hefur spurst til hans síðan þar til nú um helgina, þegar tveir fjallgöngumenn gengu fram á vel varðveitt lík hans í jöklinum.

Þegar Holland hvarf var hann að reyna við hættulega leið upp frosinn foss sem þekkt var með nafninu „Slipstream", við tindinn Snow Dome, sem stendur 3.456 metra yfir sjávarmáli í jöklum kanadísku Klettafjallanna.  Nú virðist sem hann hafi hrapað ofan í jökulsprungu og lík hans varðveist þar í rúma 2 áratugi þar til nú, þegar jökullinn er tekinn að bráðna, að lík hans kom aftur í ljós.

Kanadíski björgunarsveitarmaðurinn segir að bráðnað hafi ofan af Holland og þegar hann og félagi hans gengu fram á líkið hafi hvergi þurft að losa það upp eða grafa ofan af því. „Hann var eiginlega bara skinn og bein og leit út eins og múmía. Fötin hans og göngubúnaðurinn voru nokkurn veginn á sínum stað og ef þú hugsar um hvar hann var má eiginlega segja að hann hafi verið djúpfrystur í 21 ár."

Holland fannst með brodda á gönguskónum og með reipi slengt yfir öxlina. Fjölskyldu hans hefur verið tilkynnt að hann sé loks kominn í leitirnar. Talið er að ísinn sem hann kleif hafi brotnað og hrunið með honum niður fjallshlíðina eina 300 metra. Vitað er um a.m.k. 2 aðra jöklafara sem hafa horfið í þjóðgarðinum og ekki útilokað að jökullinn muni einhvern daginn einnig skila þeim til baka.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is