Baptista ráðinn til Lacoste

Felipe Oliveira Baptista stækka

Felipe Oliveira Baptista

Portúgalski hönnuðurinn Felipe Oliveira Baptista, 35 ára, hefur verið ráðinn listrænn hönnuður hjá Lacoste. Tekur hann við starfinu strax en áður gegndi franski hönnuðurinn  Christophe Lemaire starfinu. 

Lemaire, sem hefur unnið fyrir Lacoste í tíu ár er að fara til Hermes sem listrænn hönnuður í kvenfatadeild. Tekur hann við því starfi af Jean-Paul Gaultier.

Baptista mun kynna fyrstu línu sína fyrir Lacoste sumarið 2012 en hann hefur undanfarið kynnt eigin framleiðslu auk þess sem hann hefur verið gestahönnuður hjá ýmsum frægum tískuhúsum. Er talið að fatnaður Lacoste verði kvenlegri á ný og að salan eigi eftir að aukast á mörkuðum eins og Kína og Brasilíu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is