Expendables 2?

Harðjaxlarnir Dolph Lundgren, Silvester Stallone og Jason Statham leika allir í Expendebles. stækka

Harðjaxlarnir Dolph Lundgren, Silvester Stallone og Jason Statham leika allir í Expendebles. Reuters

„Ég snæddi kvöldverð með Bruce Willis í gærkvöldi. Ég vil að hann leiki ofurskúrk í Expendables 2. Hvað finnst ykkur?“ tísti leikarinn og leikstjórinn Sylvester Stallone á Tweeter í gær.

The Expendables hefur notið góðrar aðsóknar í kvikmyndahúsum vestanhafs (og er jafnframt í toppsæti íslenska Bíólistans) og náði m.a. þeim árangri að verða tekjuhæsta kvikmynd sem Stallone hefur leikið í, sé litið til frumsýningarhelgar í Bandaríkjunum. Því ættu peningar ekki að vera framhaldinu fyrirstaða.

Willis leikur hinn dularfulla Mr. Church í The Expendables sem setur hinum fórnanlegu fyrir hættulegt verkefni.

Þá velti Stallone því fyrir sér hverjir væru hættulegustu staðir heims hvað varðar sögusvið framhaldsins. Notendur Tweeter stungu þá m.a. upp á Suður-Afríku, Norður-Kóreu, Taílandi, Afganistan og Íran. Áhugasamir fylgist með tísti Stallone.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is