Gabor flutt á sjúkrahús

Zsa Zsa Gabor árið 1986. Hún fæddist í Ungverjalandi árið 1917 og gerðist fræg leikkona ... stækka

Zsa Zsa Gabor árið 1986. Hún fæddist í Ungverjalandi árið 1917 og gerðist fræg leikkona í Hollywood. AP

Leikkonan Zsa Zsa Gabor, sem orðin er 93 ára, var flutt í dag með hraði á bráðadeild. Þá hafði eiginmaður hennar komið að henni meðvitundarlausri á heimili þeirra og sýndi hún engin viðbrögð. 

Leikkonan var lögð inn á sjúkrahús 17. júlí sl. eftir að hún hafði dottið og mjaðmarbrotnað. Hún gekkst undir skipti á mjaðmarlið en fékk ýmsa kvilla í kjölfarið. Þar á meðal var blóðtappi og þurfti hún að gangast undir annan uppskurð hans vegna. 

Fyrir tveimur vikum óskaði hún eftir því að prestur veitti sér hinstu smurningu. Hún fór af spítalanum daginn eftir og fór aftur heim til sín í Bel Air. 

Zsa Zsa Gabor er ungversk að ætt. Hún var mjög þekkt leikkona og fegurðardrottning fyrrum. Hún lék hlutverk í mörgum þekktum kvikmyndum, þar á meðal kvikmynd John Huston „Moulin Rouge“ árið 1952 og mynd Orson Welles „Touch of Evil“ árið 1958.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Funk-bræðingur á Kex Hostel

Einar Scheving.
05:30 Annað kvöld kl. 20.30 verða tónleikar á KEX Hostel þar sem Einar Scheving og félagar koma fram.   Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

finnur.is