Veröld/Fólk
| mbl
| 31.8.2010
| 21:34
Grímulaus áróður á Baggalútsvef
Vefur Baggalúts verður opnaður að nýju á miðnætti eftir langt og óvenjuleiðinlegt frí. Segir í tilkynningu frá Baggalúti, að meðal nýjunga á næsta Baggalútsári megi nefna endurbætt útlit, þar sem sérstakt tillit sé tekið til farsímaunnenda, grímulausan áróður og stórauknar fjárheimildir til sjónvarpssviðs samsteypunnar.
Fram kemur að samningar hafi náðst um endurfjármögnun vefjar útgáfu- og afreyingarrisans. Endurfjármögnunin nemi vel á fjórða þúsund króna, sem ætti að tryggja Baggalúti rekstrargrundvöll næstu mánuði. Því sé ljóst að tíunda starfsár Baggalúts er að bresta á.
Tekið er fram að gefnu tilefni, að Randver verði ekki með að þessu sinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









