Veröld/Fólk
| mbl
| 31.8.2010
| 16:03
Lohan: Ég er ekki alkóhólisti
Lindsay Lohan harðneitar því að eiga við áfengisvandamál að stríða. Hún neitar því einnig að vera háð lyfseðlisskyldum lyfjum og segist ekki lengur vera ung og óábyrg.
Lohan, sem er 24 ára gömul, var í síðustu viku útskrifuð af meðferðarstofnun en hún sat af sér þrettán daga í fangelsi og tuttugu og þrjá daga á meðferðarheimili.
Í viðtali við Vanity Fair tímaritið heldur hún því fram að hún hafi aldrei þjáðst af áfengis- og lyfjafíkn. Lohan segir í viðtalinu að hún sé ákveðin í því að snúa dæminu við og breyta um lífstíl. Hún ætli sér að verða virt leikkona á ný.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- „Minn stærsti djöfull er ég sjálf“
- The Artist fékk sjö verðlaun
- Dóttir Houston á sjúkrahús
- Fjölskylda Houston miður sín
- Reisir styttu af forsetafrúnni
- Stjörnum prýdd verðlaunahátíð
- „Ótrúlega íslenskur og svalur“
- Styttuþjófar herja á London
-
Fólk víða að minnist Houston
- Sektir fyrir að kasta svifdiskum
-
Aðdáendur Houston bíða frétta









