Myndirnar sem keppa um Gyllta lundann

Tólf kvikmyndir keppa um aðalverðlaun RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík í ár. Keppnisflokkurinn nefnist Vitranir en í þeim flokki tefla nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd í keppni um að verða útnefndir Uppgötvun ársins. Sigurvegarinn hlýtur svo aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllta lundann, sem var hannaður af Stefáni Pétri Sólveigarsyni.

Þrír sitja í dómnefnd RIFF í ár, og velja bestu myndina í flokknum. Þeir eru:Cameron Bailey, stjórnandi TIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Toronto (formaður dómnefndar).Valdís Óskarsdóttir, kvikmyndagerðarmaður og klippari og Laura Kern, blaðamaður og gagnrýnandi hjá Film Comment í Bandaríkjunum, samkvæmt tilkynningu.

PDF-skrá Myndirnar sem keppa á RIFF
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is