Ósætti við salernið

Það getur reynst erfitt að bíða eftir því að komast að á salerninu stækka

Það getur reynst erfitt að bíða eftir því að komast að á salerninu mbl.is/ÞÖK

Ein eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu í Vestmannaeyjum í vikunni en um var að ræða skemmdir að salernishurð á skemmtistaðnum Volcano. Þarna hafi einn gestanna orðið óhress með annan gest sem ruddist á undan inn á salerni og vildi sá sem sparkaði í hurðina láta vita af óánægju sinni með þessum hætti.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni en í öllum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is