Síðasti keppandi fyrstu HM úrslitanna látinn

Francisco Varallo var fótboltaunnandi allt til dánardags. stækka

Francisco Varallo var fótboltaunnandi allt til dánardags. AFP

Síðasti eftirlifandi keppandinn úr úrslitaleiknum í fyrstu heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu, Francisco Varallo, lést í gær 100 ára að aldri. Varallo keppti fyrir landslið Argentínu á móti Úrúgvæ í Montevideo árið 1930 og tapaði 4-2.

Á leiktíð sinni fyrir fótboltaklúbbinn Boca Juniors skoraði Varallo 194 mörk, og var það met ekki slegið innan liðsins fyrr en með núverandi framherja, Martin Palermo. Varallo hlaut fljótlega viðurnefnið  „Canoncito" eða „litla fallbyssan" enda var hann þekktur fyrir skotkraft.

Í tilefni 100 ára afmælis hans í fyrra tók Fifa viðtal við Varallo og sagði hann þar m.a. að tapið fyrir Úrúgvæ í heimsmeistarakeppninni 1930 hefðu verið mestu vonbrigðin á ferlinum. „Með fullri virðingu fyrir félögum mínum, þá vorum við ekki nógu djarfir," sagði fótboltakappinn fyrrverandi. „Það sem ég grét þennan dag. Meira að segja í dag þegar ég hugsa um það verð ég ennþá reiður."

Varallo lét af atvinnumennsku 30 ára að aldri vegna meiðsla og gerðist þá þjálfari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is