Spaugstofan á Stöð 2

Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Ari Edwald, forstjóri 365, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson skrifa ... stækka

Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Ari Edwald, forstjóri 365, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson skrifa undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu. mbl.is/Golli

Spaugstofan verður með sjónvarpsþætti sína á Stöð 2 í vetur en nú er verið að skrifa undir tveggja ára samning um þetta í Þjóðmenningarhúsinu. Munu sýningar hefjast á þáttunum 9. október og verða þeir á sama tíma og þeir voru í Sjónvarpinu, klukkan 19:35 á laugardögum.

Þeir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sjá um þættina eins og þeir hafa gert undanfarin ár. 

Forráðamenn Ríkisútvarpsins ákváðu fyrr í ágúst, að Spaugstofan yrði ekki á dagskrá næsta vetur. Ástæðan var sögð 9% niðurskurður sem RÚV þarf að fara eftir. Þá höfðu Spaugstofumenn séð um skemmtiþætti fyrir Ríkisútvarpið í 21 ár.

Spaugstofan verður með þætti sína á Stöð 2 næstu tvö árin.

Spaugstofan verður með þætti sína á Stöð 2 næstu tvö árin. mbl.is/RAX

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Reyndu að stela blöndunartækjum og hurðum

06:06 Þrír menn voru teknir höndum af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan tvö í nótt í nýbyggingu við Boðaþing í Kópavogi. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir þegar lögreglumenn komu á vettvang og var eitthvað af þýfinu þegar komið út í bifreið sem þeir voru með skammt undan. Meira »

Þurfa að vinna nær arnarhreiðrum

Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness.
05:30 Vegagerðin mun sækja um undanþágu til að geta unnið að vegagerð á Vestfjarðavegi á varptíma arnarins næstu þrjú til fjögur ár. Meira »

Ekki einfalt að kaupa

Grímsstaðir á Fjöllum.
05:30 Það gæti reynst flóknara en virðist í fyrstu fyrir sveitarfélagið Norðurþing að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum, með láni frá Huang Nubo, til að endurleigja honum. Meira »

Staðið í strætó

Staðið í strætó.
05:30 „Ég persónulega kæri mig ekki um að drengurinn minn standi í strætó á milli byggðarlaga og borgi svo fullt fargjald fyrir,“ segir Halldór Guðmundsson, leigubifreiðarstjóri. Meira »

finnur.is