Aska Willi komin heim til Berlínar

Reuters

Sagan af þýsku konunni sem var handtekin fyrir að reyna að fljúga heim með eiginmanninn látinn í þotu easyJet frá Englandi í apríl endaði vel. Því nú fimm mánuðum síðar er aska hans kominn heim til Berlínar og bíður á arinhillu frúarinnar eftir því að komast í vígða mold.

Gitta Jarant og dóttir hennar Anke Anusic neituðu því að hafa vitað að  Kurt Willi Jarant, 91 árs, væri látinn er þremenningarnir mættu í innritun í flug til Berlínar á flugvellinum Liverpool í apríl sl.

Þýska blaðið Bild hefur eftir dótturinni að Willi hefði verið ánægður með að vera kominn heim til Berlínar. „Þetta var allaf heimili hans," hefur Bild eftir  Anusic.

Starfsfólk á John Lennon flugvellinum í Liverpool hafði aðstoðað Willi, sem var með sólgleraugu, út úr leigubíl og komið honum fyrir í hjólastól. Hins vegar fylltust starfsmenn grunsemdum um að ekki væri allt með felldu og tóku púlsinn á honum. Í ljós kom að ekkert lífsmark var með manninum.

„Willi minn lést á flugvellinum. Hann varð allt í einu svo máttlaus og minnti á vaxbrúðu. Síðan urðu neglur á fingrum hans bláar," sagði ekkjan. „Hann var enn volgur þegar við vorum heima. Ég sver það."

Breska lögreglan var hins vegar ekki jafn sannfærð og taldi að ekkjan og dóttir hennar hafi ætlað að spara pening því afar kostnaðarsamt er að flytja lík milli landa. Mæðgurnar voru hins vegar látnar lausar gegn tryggingu og verður upplýst um málalok síðar í mánuðinum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is