Bestu Bítlalögin valin
Lagið A Day in the Life er besta lagið sem Bítlarnir sendu frá sér að mati bandaríska tónlistarblaðsins Rolling Stone. Lagið var á plötunni Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band, sem kom út árið 1967 og þótti marka tímamót í útsetningu á popplögum.
Lagið er að mestu eftir John Lennon en millikaflinn er eftir Paul McCartney og hann átti einnig hugmyndina að því að láta sinfóníuhljómsveit spila frá lægsta tóni á hljóðfærunum upp í þann hæsta og búa þannig til „hljómsveitarfullnægingu," eins og útsetjarinn George Martin kallaði það.
Næstbesta lagið er að mati Rolling Stone I Want to Hold Your Hand, sem kom út 1963, fyrsta Bítlalagið sem komst í efsta sæti bandaríska vinsældarlistans.
Í þriðja sæti er lagið Strawberry Fields Forever, sem kom út á smáskífu ásamt Penny Lane árið 1967. Í fjórða sæti er Yesterday, sem kom út árið 1965, og í fimmta sæti er In My Life, sem var á plötunni Rubber Soal 1965.
Lag Georges Harrisons, Something, sem var á plötunni Abbey Road árið 1969, er í 6. sæti, Hey Jude, sem kom út á smáskífu 1968, er í 7. sæti, Let it Be, sem var á samnefndri breiðskífu Bítlanna 1970, þeirri síðustu, er í 8. sæti, Come Together, sem var á Abbey Road, er í 9. sæti og While My Guitar Gently Weeps, sem kom út á Hvíta albúminu 1968, er í 10. sæti.
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









