Corinne Day látin

Breski ljósmyndarinn Corinne Day, sem er best þekkt fyrir myndir sem hún tók af Kate Moss er fyrirsætan hóf feril sinn, lést um helgina úr krabbameini. Day, sem var 48 ára, lést á heimili sínu, en baráttan við krabbameinið hafði staðið lengi yfir.

Myndir sem Day tók af Moss árið 1993 vöktu mikil viðbrögð enda þykja myndirnar ýta undir svokallað „heróínútlit".

Myndir Day hafa verið sýndar í National Portrait Gallery og Tate Modern. Auk þess sem hún tók reglulega myndir fyrir tískutímaritið Vouge, samkvæmt frétt BBC.

Hér er hægt að skoða myndir sem Day hefur tekið
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Minn stærsti djöfull er ég sjálf“

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 23:30 Lögreglan hefur í allan dag leitað skýringa á dauða poppsöngkonunnar Whitney Houston. Á meðan undirbýr tónlistarheimurinn árshátíð sína, sjálfa Grammy-verðlaunahátíðina. Minn stærsti djöfull er ég sjálf, sagði Houston í viðtali árið 2002. Meira »

Dóttir Houston á sjúkrahús

Whitney Houston ásamt dóttur sinni Bobbi Kristina Brown.
Í gær, 21:02 Dóttir söngkonunnar Whitney Houston var flutt á sjúkrahús í dag. Ekki er ljóst hvers vegna Bobbi Kristina Brown þurfti á læknisaðstoð að halda. Meira »

The Artist fékk sjö verðlaun

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í hlutverkum sínum í kvikmyndinni The Artist.
Í gær, 21:43 Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Meryl Streep var valin besta leikkona í aðalhlutverki. Meira »

Fjölskylda Houston miður sín

Whitney Houston árið 1998.
Í gær, 20:35 Fjölskylda söngkonunnar Whitney Houston segist miður sín yfir þeim harmleik sem fráfall hennar sé. Houston fannst látin í baðkari á hótelherbergi í gær. Hún var 48 ára. Meira »

finnur.is