Drakk áfengi til að draga úr spennu

Tony Blair í viðtali við BBC í vikunni. stækka

Tony Blair í viðtali við BBC í vikunni. Reuters

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, segist í endurminningum sínum, sem koma út í dag, hafa neytt áfengis daglega á tímabili til að slaka á og draga úr þeirri spennu, sem fylgdi embættinu.

Blair segir raunar að hægt væri að skrifa heila bók um tengsl áfengis og forsætisráðherra. Sjálfur segist hann hafa drukkið viskí eða gin og tónik fyrir kvöldmatinn og síðan eitt eða tvö glös á léttvíni, jafnvel hálfa flösku.

Hann segist telja, að honum hafi tekist að hafa stjórn á áfengisneyslu sinni en jafnframt gert sér grein fyrir því, að hann var farinn að „styðja sig" við áfengið.

„Eftir því sem tíminn líður verður þetta auðveldlega daglegur vani og líkaminn þarf á því að halda til að slaka á. Til að draga úr spennu. Til að örva. Til að gera leiðinlegt kvöld þolanlegt," skrifar Blair í bókinni The Journey.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin bæði fyrir plötu ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is