Gerður Kristný hlýtur barnabókarverðlaun

Gerður Kristný tók við verðlaununum úr hendi Dagnýjar Kristjánsdóttur prófessors og Ólínar Þorvarðardóttur formanns Vestnorræna ... stækka

Gerður Kristný tók við verðlaununum úr hendi Dagnýjar Kristjánsdóttur prófessors og Ólínar Þorvarðardóttur formanns Vestnorræna ráðsins.

Gerður Kristný hlaut í morgun Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn. Ólína Þorvarðardóttir formaður ráðsins og prófessor Dagný Kristjánsdóttir afhentu Gerði Kristnýju verðlaunin sem nema um 1,2 milljón íslenskra króna í Alþingishúsinu.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Garðurinn sé ,,unglingabók, samtímasaga og fortíðarsaga, skrifuð af fagmennsku og sjaldgæfum glæsibrag. Nútíð og fortíð tengjast í mörgum hliðarsögum og mörkin milli hins þekkta og óþekkta eru dregin í efa. Garðurinn gerist í Reykjavík. Gerður Kristný blandar saman ólíkum bókmenntagreinum og beitir aðferðum draugasagna, fantasíu, sálfræðilegra þroskasagna og sögulegra skáldsagna. Íslandssagan leikur stórt hlutverk í skáldsögunni.

Spænska veikin (1918) lagðist þungt á Reykjavík. Annar áratugur aldarinnar sem leið er í bakgrunni sögunnar og að honum beinist ótti aðalpersónunnar við hið óþekkta og þau eyðingaröfl sem reynast ekki alltaf koma utan frá heldur geta einnig búið innra með okkur. Í þessari bók tekst höfundinum fagurlega að sameina þekkingu, skemmtun og listrænt gildi."

Þetta er í fimmta skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár.  Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipaði Oddfríður Marni Rasmussen frá Færeyjum, Vera Lise Rosing Olsen frá Grænlandi og prófessor Dagný Kristjánsdóttir frá Íslandi. Auk Garðsins voru barnabækurnar Várferðin til Brúnna frá Færeyjum eftir Rakel Helmsdal og Sila frá Grænlandi eftir Lana Hansen tilnefndar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni myndskeið

Minntust Houston á Grammy
08:26 Söngkonunnar Whitney Houston var minnst á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær með bænum og söng en hún lést í gær sem kunnugt er. Meira »

Adele fékk sex Grammy-verðlaun myndskeið

Whitney Houston remembered on Grammy red carpet
07:17 Breska söngkonan Adele kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni í gær þegar hún vann hvorki meira né minna en sex verðlaun. Þar á meðal fékk hún Grammy-verðlaunin fyrir bæði plötu og lag ársins. Meira »

Dádýr og hrútur ganga í það heilaga

Hrúturinn Changmao og dádýrið Chunzi.
08:20 Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins. Meira »

Steinunn talar um kjóla og korselett

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar.
05:30 Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður halda fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands.  Meira »

finnur.is