Hrekkjótir apar herja á Japani

Macaque apar stækka

Macaque apar Reuters

Tveir bæir í Japan hafa lýst yfir stríði við gengi vandræðaapa sem hafa ráðist á yfir 60 manns í skógi vöxnum hlíðum Fuji fjalls. Óvenjumargir hafa orðið fyrir árásum apa sem bíta og klóra og því hafa yfirvöld bæjanna Mishima og Susona fengið hundruð sjálfboðaliða, borgarstarfsmanna, lögreglumanna og dýralækna til að taka þátt í að fanga dýrin.

Að minnsta kosti 62 hafa tilkynnt um minniháttar áverka eftir árásir apa frá 22. ágúst síðastliðnum. Áætlað er að nota deyfibyssur til að ná dýrunum, en baráttan gæti orðið löng því yfirvöld segja erfitt að hafa hendur í hári apa sem leggja á flótta í skógarþykkninu yfir fjallgarðinn.  Á heimasíðu bæjarins Mishima eru nú reglulega uppfærðar upplýsingar um hvar síðast sást til apanna og fá börn fylgd sjálfboðaliða í skólann til að vernda þau fyrir árásum. Talið er að um sé að ræða hina japönsku macaque apa, sem hingað til hafa fyrst og fremst verið frægir fyrir að baða sig í heitum laugum á jarðhitasvæðum.

Sögur af apaárásum eru þó algengar í sveitahéröðum Japan, þar sem bændur þurfa að halda öpum frá ávaxtaræktinni og ferðamenn í fjarlægum fjallaþorpum eru oft bitnir, ekki síst á veturna, þegar aparnir eru í fæðuleit. Dýrasérfræðingar telja að hugsanlega ráðist aparnir nú á fólk sér til skemmtunar og líklegt sé að þeir muni hætta því þegar þeim fer að leiðast og nýjabrumið fer af hrekkjunum. „Árásirnar byrjuðu mjög skyndilega og við vitum ekki af hverju. Aðeins aparnir geta útskýrt hvers vegna þeir byrjuðu á þessu."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is